Sunday, July 5, 2009

Reberbanegade

Við leigjum fína íbúð á Reberbanegade á Amager, skólinn hennar Fanndísar er hinum megin við götuna. Héðan eru svo nokkur skref í stóra verslunarmiðstöð og iðandi mannlíf á Amagerbrogade. Örstutt í metróið og í miðbæinn, ferlega góð staðsetning.

Íbúðin okkar er lítil en mjög fín á danskan mælikvarða. Við fengum hana afhenta 1. júlí og erum búnar að nota tímann til að koma okkur fyrir og versla inn. Danir hafa þann háttinn á að þeir setja húsgögn og allskonar dót sem þeir eru hættir að nota ofaní kjallara og jafnvel út á götu. Þannig nældum við okkur í ferlega flottann fatastand, tvo stóla og borð. Svo erum við búnar að fara í Ikea og kaupa hluti sem vantaði í búið. Fanndís er alsæl og nýtur þess að ditta að nýja herberginu sínu. Þótt íbúðin sé ekki stór þá hefur Fanndís aldrei haft jafn stórt herbergi áður og fílar það vel.

Við Fanndís og Rósa systir hittum skólastjórann í skólanum sem Fanndís fer í um daginn og okkur líst mjög vel á þennan skóla. Mikið er lagt upp úr tónlist og skólinn fékk sérstakann styrk frá ríkinu til þess að geta lagt enn meiri áherslu á tónlistarstarfið. Okkur fannst nú ekki leiðinlegt að segja frá því að Fanndís kynni að spila á píanó og hefði æft frá 8 ára aldri.

Tekla (hundurinn) tekur öllu með miklu jafnaðargeði. Sem betur fer er það þannig með hunda að þeir tengjast frekar fólki en staðsetningum þannig að hún virðist alltaf alsæl svo lengi sem við mæðgur erum nálægt. Deebo, hundurinn sem Rósa systir og Dagur mágur eiga, og Tekla ná bara ótrúlega vel saman og það er eitthvað samkomulag þeirra á milli sem komst á á fyrstu mínútunni. Tekla vill ekki láta þefa af rassinum sínum og lætur vita á harkalegan hátt af því og Deebo virðir það.

Við mæðgur byrjum svo á dönskunámskeiði á fimmtudaginn, einkanámskeið takk fyrir svo nú verður aldeilis tekið á því. Það er bara lítið um námskeið í boði svona á sumrin þannig að þetta varð ofaná.
En ég er búin að smella af nokkrum myndum sem fá að fljóta með.










Fluttar til DK


Jæja þá erum við mæðgur og Tekla fluttar til Kaupmannahafnar þar sem nám við Kaupmannahafnarháskóla tekur við. Pabbi skutlaði okkur út á völl og hér má sjá myndir af kveðjustund. Allt gekk vel og Tekla sem var á róandi var bara brött þegar við fengum hana aftur í hendurnar á Kastrup.