Þá er það komið á hreint - beiðni mín um skiptinám við Kaupmannahafnarháskóla var samþykkt! Því er allt komið á full swing í þeim undirbúningi að yfirgefa þetta land. Íbúðin mín er laus til leigu (áhugasamir hafi samband), dóttir mín er að spá í spilin (hvort hún eigi að fylgja mömmu eða klára 10. bekk hér heima) og Tekla sem ekkert hefur um málin að segja nema voff voff fylgir Fanndísi út á land eða út til mín :) Ég vona að þær komi með en virði það ef Fanndís vil vera hér einn vetur í föðurhúsum á afskekktum stað úti á landi. Já það er annaðhvort krummaskuð með nokkrum húsum eða stórborg. Ég skil bæði sjónarmið - væri alveg til í það stundum að vera bóndakona úti á landi fjarri öllum asa - og svo langar mig líka að vera næstu misseri í ys og þys Kaupmannahafnarborgar.Ég er mjög spennt yfir því að fara út. Bæði það að mig hefur lengi langað til að búa í Kaupmannahöfn og svo hitt að ég þarf pásu frá Íslandi. Verst þykir mér að hætta í vinnunni minni hjá HÍ sem mér líkar mjög vel í. En það er auðvelt að festast í einhverjum pakka hér heima og ég læt það ekki stoppa mig í þetta sinn. En pásan frá Íslandi verður kærkomin. Ég er nefnilega pínulítið pirruð yfir því sem hér hefur gerst. Sumir segja að við höfum öll tekið þátt í þessu góðæri og aðrir segja að við höfum öll orðið sátt við það að launabilið varð svona gífurlegt og ble ble ble. - Ég mótmæli og bendi t.d. á bloggfærslu mína frá maí 2007 http://blogg.visir.is/krasa/2007/05/03/hvers-vir%c3%b0i-ert-%c3%beu/ ég hef bloggað miklu meira um þessa hluti en hlífi ykkur við linkunum en það er auðvelt að fletta því upp í leitarvélinni á gamla vísisblogginu mínu - sem ég hætti að blogga á af siðferðislegum ástæðum. En það fer mjög í taugarnar á mér að því sé haldið fram að "allir" hafi spilað með. Hvað hefur mín rödd að segja í þessu samfélagi? Var einhver að hlusta á mig og marga marga aðra sem bentu á það að þetta væri nú kannski ekki alveg í lagi? UHH NEI!
Í fyrsta sinn á mínum námsferli sé ég fram á að vera "bara" í skóla næsta haust (í það minnsta síðan í 10. bekk) því ég hef alltaf unnið eins og m.f. með öllu mínu námi. Gvöð hvað ég er orðin þreytt á því. Ég hlakka svo til að geta lesið daginn út og daginn inn og gert hlutina af yfirvegun og natni.
Í kvöld (laugardagskvöld) er ég auðvitað að læra. Kona í mastersnámi og 120% vinnu þekkir ekkert annað. Eini lúxsusinn er smá hvítt í flottu glasi til tilbreytingar.
