Já komið þið sæl og blessuð.
Hér er ég komin á blogspot algerlega óháðan miðil að ég best veit. Get ekki bloggað meira á Vísis blogginu því mér finnst að það sé verið að skemma Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Hef séð ýmislegt gerast á mínum gamla vinnustað en ekkert í líkingu við þau skemmdarverk sem þar eru unnin nú. Margra ára vinna og uppbygging á ímynd fljúga nú út um gluggann.

En við mæðgur vorum í yndislegri jeppaferð með NFS jeppaklúbbnum um helgina og það er alltaf jafn gaman. Þessa helgina gistum við í Drangshlíð undir Eyjafjöllum og keyrðum inn í Þórsmörk og borðuðum nesti í Langadal. Svo var þorraveisla á laugardagskvöldinu og auðvitað sungið fram á nótt. Hér til hliðar má sjá hluta af hópnum við Eyjafjallajökul.
Svava í sautján var rétt í þessu að segja í Sjálfstæðu fólki að hún vildi sjá fleiri konur í stjórnum fyrirtækja - en hún sé sko enginn femínisti og vildi sko sérstaklega fá að taka það fram! Jamm eins og margir vill hún sjá eitthvað gerast en alls ekki taka þátt í því. Femínisti er jú bara karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því. Margir gera þetta, viðurkenna að jafnrétti sé ekki náð en vilja ekkert gera í því. En mikið tilbúnir að tala um femínista eða femínisma sem eitthvað af hinu vonda. Mér er fyrirmunað að skilja þetta.