Sunday, July 5, 2009

Reberbanegade

Við leigjum fína íbúð á Reberbanegade á Amager, skólinn hennar Fanndísar er hinum megin við götuna. Héðan eru svo nokkur skref í stóra verslunarmiðstöð og iðandi mannlíf á Amagerbrogade. Örstutt í metróið og í miðbæinn, ferlega góð staðsetning.

Íbúðin okkar er lítil en mjög fín á danskan mælikvarða. Við fengum hana afhenta 1. júlí og erum búnar að nota tímann til að koma okkur fyrir og versla inn. Danir hafa þann háttinn á að þeir setja húsgögn og allskonar dót sem þeir eru hættir að nota ofaní kjallara og jafnvel út á götu. Þannig nældum við okkur í ferlega flottann fatastand, tvo stóla og borð. Svo erum við búnar að fara í Ikea og kaupa hluti sem vantaði í búið. Fanndís er alsæl og nýtur þess að ditta að nýja herberginu sínu. Þótt íbúðin sé ekki stór þá hefur Fanndís aldrei haft jafn stórt herbergi áður og fílar það vel.

Við Fanndís og Rósa systir hittum skólastjórann í skólanum sem Fanndís fer í um daginn og okkur líst mjög vel á þennan skóla. Mikið er lagt upp úr tónlist og skólinn fékk sérstakann styrk frá ríkinu til þess að geta lagt enn meiri áherslu á tónlistarstarfið. Okkur fannst nú ekki leiðinlegt að segja frá því að Fanndís kynni að spila á píanó og hefði æft frá 8 ára aldri.

Tekla (hundurinn) tekur öllu með miklu jafnaðargeði. Sem betur fer er það þannig með hunda að þeir tengjast frekar fólki en staðsetningum þannig að hún virðist alltaf alsæl svo lengi sem við mæðgur erum nálægt. Deebo, hundurinn sem Rósa systir og Dagur mágur eiga, og Tekla ná bara ótrúlega vel saman og það er eitthvað samkomulag þeirra á milli sem komst á á fyrstu mínútunni. Tekla vill ekki láta þefa af rassinum sínum og lætur vita á harkalegan hátt af því og Deebo virðir það.

Við mæðgur byrjum svo á dönskunámskeiði á fimmtudaginn, einkanámskeið takk fyrir svo nú verður aldeilis tekið á því. Það er bara lítið um námskeið í boði svona á sumrin þannig að þetta varð ofaná.
En ég er búin að smella af nokkrum myndum sem fá að fljóta með.










Fluttar til DK


Jæja þá erum við mæðgur og Tekla fluttar til Kaupmannahafnar þar sem nám við Kaupmannahafnarháskóla tekur við. Pabbi skutlaði okkur út á völl og hér má sjá myndir af kveðjustund. Allt gekk vel og Tekla sem var á róandi var bara brött þegar við fengum hana aftur í hendurnar á Kastrup.


Saturday, April 4, 2009

Nú er ég farin

Þá er það komið á hreint - beiðni mín um skiptinám við Kaupmannahafnarháskóla var samþykkt! Því er allt komið á full swing í þeim undirbúningi að yfirgefa þetta land. Íbúðin mín er laus til leigu (áhugasamir hafi samband), dóttir mín er að spá í spilin (hvort hún eigi að fylgja mömmu eða klára 10. bekk hér heima) og Tekla sem ekkert hefur um málin að segja nema voff voff fylgir Fanndísi út á land eða út til mín :) Ég vona að þær komi með en virði það ef Fanndís vil vera hér einn vetur í föðurhúsum á afskekktum stað úti á landi. Já það er annaðhvort krummaskuð með nokkrum húsum eða stórborg. Ég skil bæði sjónarmið - væri alveg til í það stundum að vera bóndakona úti á landi fjarri öllum asa - og svo langar mig líka að vera næstu misseri í ys og þys Kaupmannahafnarborgar.

Ég er mjög spennt yfir því að fara út. Bæði það að mig hefur lengi langað til að búa í Kaupmannahöfn og svo hitt að ég þarf pásu frá Íslandi. Verst þykir mér að hætta í vinnunni minni hjá HÍ sem mér líkar mjög vel í. En það er auðvelt að festast í einhverjum pakka hér heima og ég læt það ekki stoppa mig í þetta sinn. En pásan frá Íslandi verður kærkomin. Ég er nefnilega pínulítið pirruð yfir því sem hér hefur gerst. Sumir segja að við höfum öll tekið þátt í þessu góðæri og aðrir segja að við höfum öll orðið sátt við það að launabilið varð svona gífurlegt og ble ble ble. - Ég mótmæli og bendi t.d. á bloggfærslu mína frá maí 2007 http://blogg.visir.is/krasa/2007/05/03/hvers-vir%c3%b0i-ert-%c3%beu/ ég hef bloggað miklu meira um þessa hluti en hlífi ykkur við linkunum en það er auðvelt að fletta því upp í leitarvélinni á gamla vísisblogginu mínu - sem ég hætti að blogga á af siðferðislegum ástæðum. En það fer mjög í taugarnar á mér að því sé haldið fram að "allir" hafi spilað með. Hvað hefur mín rödd að segja í þessu samfélagi? Var einhver að hlusta á mig og marga marga aðra sem bentu á það að þetta væri nú kannski ekki alveg í lagi? UHH NEI!

Í fyrsta sinn á mínum námsferli sé ég fram á að vera "bara" í skóla næsta haust (í það minnsta síðan í 10. bekk) því ég hef alltaf unnið eins og m.f. með öllu mínu námi. Gvöð hvað ég er orðin þreytt á því. Ég hlakka svo til að geta lesið daginn út og daginn inn og gert hlutina af yfirvegun og natni.

Í kvöld (laugardagskvöld) er ég auðvitað að læra. Kona í mastersnámi og 120% vinnu þekkir ekkert annað. Eini lúxsusinn er smá hvítt í flottu glasi til tilbreytingar.

Tuesday, February 24, 2009

Hrukkur á fullorðnum


Þessi kona sem er fimmtug samkvæmt íslenskri fréttavefsíðu þykir afar hrukkótt. Fyrirsögn "fréttarinnar" er Hrukótt Stone - myndir.

Þetta eru sláandi upplýsingar fyrir okkur hin.

Saturday, February 14, 2009

Þú mátt fá hana því ég vil ekki sjá hana því hún er allt of...


Þessi kona þykir voðalega feit í heimi ríka og fræga fólksins. Það er varla hægt að opna fréttavefsíðu án þess að fjallað sé um holdarfar þessarar konu. Guð hjálpi mannkynsúrkynjuninni.

Saturday, January 31, 2009

Veruleikafirring

Rausið sem nú heyrist frá Valhöll staðfestir þá veruleikafirringu sem bersýnilega kom í ljós á síðasta ári.

Sunday, January 25, 2009

Mætt

Já komið þið sæl og blessuð.

Hér er ég komin á blogspot algerlega óháðan miðil að ég best veit. Get ekki bloggað meira á Vísis blogginu því mér finnst að það sé verið að skemma Fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Hef séð ýmislegt gerast á mínum gamla vinnustað en ekkert í líkingu við þau skemmdarverk sem þar eru unnin nú. Margra ára vinna og uppbygging á ímynd fljúga nú út um gluggann.
En við mæðgur vorum í yndislegri jeppaferð með NFS jeppaklúbbnum um helgina og það er alltaf jafn gaman. Þessa helgina gistum við í Drangshlíð undir Eyjafjöllum og keyrðum inn í Þórsmörk og borðuðum nesti í Langadal. Svo var þorraveisla á laugardagskvöldinu og auðvitað sungið fram á nótt. Hér til hliðar má sjá hluta af hópnum við Eyjafjallajökul.

Svava í sautján var rétt í þessu að segja í Sjálfstæðu fólki að hún vildi sjá fleiri konur í stjórnum fyrirtækja - en hún sé sko enginn femínisti og vildi sko sérstaklega fá að taka það fram! Jamm eins og margir vill hún sjá eitthvað gerast en alls ekki taka þátt í því. Femínisti er jú bara karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því. Margir gera þetta, viðurkenna að jafnrétti sé ekki náð en vilja ekkert gera í því. En mikið tilbúnir að tala um femínista eða femínisma sem eitthvað af hinu vonda. Mér er fyrirmunað að skilja þetta.